Fotbolti.net
12.07.26 - 00:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tuchel ekki ánægður - „Vorum nógu heppnir"

Tuchel ekki ánægður - „Vorum nógu heppnir"
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel var ekki sáttur með frammistöðu enska liðsins þrátt fyrir að liðið komst áfram í undanúrslit á HM eftir sigur á Noregi eftir framlengdan leik.
„Við gerðum okkur lífið mjög, mjög erfitt í dag. Niðurstaðan er frábær, við erum komnir í undanúrslit. Það er ótrúlegt. Ég er ekki ánægður með frammistöðuna," sagði Tuchel.

„Skuldbindingin er til staðar en við gerðum okkur lífið mjög, mjög erfitt miðað við hvernig við spiluðum. Taktísk mistök, ekki nógu hratt. Við vorum nógu heppnir."

Tuchel var spurður að því hvort hugarfarið hafi ekki verið nægilega gott.

„Hvernig getur þú talað um hugarfar núna? Þetta snýst ekki um hugarfar. Þetta snýst um gæðin í leiknum okkar. Við þurfum að spila betur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.