Fotbolti.net
12.07.26 - 00:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Zlatan hakkaði Madueke í sig - „Eru að spila manni færri"

Zlatan hakkaði Madueke í sig - „Eru að spila manni færri"
Canon

Mynd: EPA

Zlatan Ibrahimovic, sérfræðingur á bandarísku sjónvarpsstöðinni FOX, var alls ekki hrifinn af frammistöðu Noni Madueke þegar England vann Noreg í 8-liða úrslitum á HM í kvöld.
„Þeir eru að spila manni færri hingað til. Madueke hefur verið á vellinum og ég verð að segja að hann tekur ranga ákvörðun í hvert skipti sem hann fær boltann og hann labbar um völlinn. Ef ég er Tuchel myndi ég taka hann út af, hann hefur ekkert gert fyrstu 45 mínúturnar," sagði Ibrahimovic.

Ibrahimovic varð að ósk sinni því Tuchel tók Madueke af velli í hálfleik.

Bukayo Saka kom inn á í hans stað og það skapaðist mun meiri hætta í kringum hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.