Álafoss saltaði breska hermenn í æfingaleik

Mynd: Hanna Sím

Mynd: Hanna Sím
Álafoss spilaði heldur betur óhefðbundinn leik um helgina þegar liðið mætti fótboltaliði breska flugmóðurskipsins HMS Prince of Wales sem nú liggur við höfn að Grundartanga.
Skipið er með 1.500 manna áhöfn og er með lið í mörgum íþróttum. En um 25 manns mættu til leiks og 15 kepptu. Kári Jökull Ingvarsson, fyrirliði Álafoss, sagði í viðtali við mbl.is að þeir hafi fengið skilaboð frá Bretunum á Instagram.
„Þetta var mjög skemmtilegur leikur. Þetta var ótrúlega skrautlegt," sagði Kári.
Leikurinn fór fram á föstudaginn og Álafoss vann leikinn 10-1. Liðið spilaði síðan í 4. deild í gær og vann ÍH 4-2. Liðið er í 8. sæti með 8 stig eftir 10 umferðir.

Heimild: Mbl