Fotbolti.net
12.07.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bellingham: Tuchel veit ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður

Bellingham: Tuchel veit ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður
Canon

Mynd: EPA

Jude Bellingham var hetja Englands þegar liðið vann Noreg 2-1 í 8-liða úrslitum á HM í gær. Hann jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks og tryggði liðinu sigur með marki í framlengingu.

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, var ekki hrifinn af frammistöðu liðsins.

„Við gerðum okkur lífið mjög, mjög erfitt í dag. Niðurstaðan er frábær, við erum komnir í undanúrslit. Það er ótrúlegt. Ég er ekki ánægður með frammistöðuna," sagði Tuchel.

„Skuldbindingin er til staðar en við gerðum okkur lífið mjög, mjög erfitt miðað við hvernig við spiluðum. Taktísk mistök, ekki nógu hratt. Við vorum nógu heppnir."
Bellingham var ekkert sérstaklega hrifinn af viðbrögðum Tuchel.

„Kannski veit hann ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður gegn Erling Haaland, Martin Ödegaard, (Antonio) Nusa og (Alexander) Sörloth. Það er ekki auðvelt lið að spila á móti," sagði Bellingham.

„Við reyndum að búa til jákvætt umhverfi og við eigum að halda því áfram inn í undanúrslitin."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.