Fotbolti.net
12.07.26 - 12:35
Brynjar Ingi Erluson

Sveindís spilaði í sigri á toppliðinu - Þorleifur úr leik í bikarnum

Sveindís Jane og stöllur hennar í Angels City eru komnar með tvo sigra í röð

Sveindís Jane og stöllur hennar í Angels City eru komnar með tvo sigra í röð

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Angels City unnu 2-0 sigur á toppliði San Diego Wave í NWSL deildinni í Bandaríkjunum í nótt.
Gengi Angels City hefur verið upp og ofan á tímabilinu, en liðið virðist vera að koma sér á gott skrið eftir að hafa unnið annan deildarleikinn í röð.

Sveindís var í byrjunarliði Angels sem skoruðu bæði mörk sín í fyrri hálfleiknum gegn toppliði San Diego.

Brasilísku landsliðskonurnar Maiara Niehues og Ary Borges skoruðu mörkin með níu mínútna millibili.

Sveindís sá gult spjald undir lok fyrri hálfleiks og var síðan tekin af velli undir lok leiksins. Angels City eru í 9. sæti deildarinnar með 19 stig eftir þrettán leiki.

Þorleifur Úlfarsson og félagar hans í Loudon töpuðu Pittsburgh, 2-0, í USL-bikarnum.

Hann var fremstur hjá Loudon sem er úr leik í bikarnum en liðið hafnaði í 5. sæti í riðli 6 með 3 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.