Fotbolti.net
12.07.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ísland í dag - Þjálfarar undir pressu mætast á Akureyri

KA fær ÍA í heimsókn

KA fær ÍA í heimsókn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru fjórir leikir í 14. umferð Bestu deildarinnar á dagskrá í kvöld.

KA fær ÍA í heimsókn. KA byrjar mótið illa en liðið er í 10. sæti með 10 stig og hefur tapað sex leikjum í röð. Það var búist við miklu af ÍA fyrir mótið en liðið er aðeins fimm stigum á undan KA í 9. sæti. Það er því ljóst að Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, og Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, sitja í heitu sæti.

Fram fær botnlið Þórs í heimsókn. Þór getur komist upp úr botnsætinu tímabundið í það minnsta en liðið er með jafn mörg stig og FH sem mætir Val síðar um kvöldið.

KR fær ÍBV í heimsókn. KR er aðeins tveimur stigum á undan Fram í 2. sæti en ÍBV getur komist upp í efri hlutann með sigri.

Þá er spilað í 2. og 3. deild karla í dag.
sunnudagur 12. júlí

Besta karla
18:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Þór (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-ÍBV (Meistaravellir)
20:05 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)

2. deild karla
14:00 Kári-KFA (Akraneshöllin)
16:00 Magni-Haukar (Grenivíkurvöllur)
16:00 Kormákur/Hvöt-Víkingur Ó. (Blönduósvöllur)
16:00 Dalvík/Reynir-Fjölnir (Dalvíkurvöllur)
16:00 Þróttur V.-KFG (Vogaídýfuvöllur)

3. deild karla
16:00 Ýmir-Tindastóll (Kórinn)
16:00 Sindri-KH (Jökulfellsvöllurinn)
16:00 KF-Höttur (Ólafsfjarðarvöllur)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR14+1429
3Fram13+727
4Breiðablik13+722
5Valur14-319
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV13-415
9ÍA13-815
10KA13-910
11FH13-138
12Þór13-218
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.