Fotbolti.net
12.07.26 - 03:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Argentína í undanúrslit eftir sigur í framlengingu gegn tíu Svisslendingum

HM: Argentína í undanúrslit eftir sigur í framlengingu gegn tíu Svisslendingum
Canon

Mynd: EPA

Argentína 2 - 1 Sviss
1-0 Alexis Mac Allister ('10 )
1-1 Dan Ndoye ('67 )
2-1 Julian Alvarez ('112 )
Rautt spjald: Breel Embolo, Switzerland ('72)
Argentína er komið í undanúrslit á HM eftir sigur á Sviss í framlengdum leik.

Argentína náði forystunni eftir tíu mínútna leik þegar Alexis Mac Allister skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Lionel Messi. Þetta var tíunda markið sem Messi lagði upp í sögu HM. Enginn hefur lagt upp fleiri.

Það var lítið markvert sem gerðist annars í fyrri hálfleik og Argentína var með 1-0 forystu þegar flautað var til hálfleiks.

Dan Ndoye komst í upplagt marktækifæri til að jafna metin snemma í seinni hálfleik en Lisandro Martinez bjargaði stórkostlega.

Ndoye klikkaði hins vegar ekki á 67. mínútu þegar hann jafnaði metin eftir laglegt samspil við Ricardo Rodriguez.

Stuttu síðar fékk Leandro Paredes fyrir brot á Breel Embolo. Dómari leiksins fór hins vegar í skjáinn og sá að Embolo dýfði sér greinilega og hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Mac Allister var nálægt því að tryggja Argentínu sigurinn undir lokin en skallaði yfir. Það þurfti því að framlengja.

Þar voru Argentínumenn sterkari. Julian Alvarez kom Argentínu yfir með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Lautaro Martinez innsiglaði síðan sigurinn í blálokin. Argentína mætir Englandi í undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.