Fotbolti.net
12.07.26 - 21:04
Ívan Guðjón Baldursson

Linta: Vorum skítlélegir stærsta hluta leiksins

Auglýsing
Linta: Vorum skítlélegir stærsta hluta leiksins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, svaraði spurningum eftir stórt tap á útivelli gegn KR í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 ÍBV
ÍBV byrjaði tímabilið hörmulega en er núna með 15 stig eftir 14 umferðir, sjö stigum frá fallsvæðinu, eftir frábær úrslit í síðustu leikjum.

„KR á þennan sigur fyllilega skilið, þeir voru miklu betra liðið frá fyrstu til síðustu mínútu leiksins. Við réðum ekki við hraðann þeirra, styrkinn og einstaklingsgæðin. Frammistaðan okkar var ekki nægilega góð, ég bjóst við meiru. Við erum betri en þetta og ég er viss um að við munum ná okkur aftur á strik," sagði Linta.

„Við litum ekki nógu vel út í þessum leik. Við náðum forystunni en vorum samt ekki nægilega góðir. Við áttum kannski fimm eða tíu mínútna kafla í síðari hálfleik þar sem við vorum góðir, það er eini kafli leiksins sem ég er ánægður með. Við vorum skítlélegir restina af leiknum.

„Við vorum slakir varnarlega. Við gáfum þeim alltof mikið pláss, töpuðum einvígunum okkar og vorum alltof seinir að elta mennina okkar og bregðast við. Sóknarlega skorti okkur hugrekki og við erum lið sem byggir ímynd sína á því að spila skemmtilegan, sóknarþenkjandi fótbolta.

„Orkustigið var ekki alveg á réttum stað í dag en það er eðlilegt. Strákarnir voru ekki búnir að tapa í kannski tvo mánuði. Allir geta átt slæman dag og það var tilfellið hjá okkur í dag."


Eyjamenn eiga næst heimaleik við KA á sunnudaginn. Þar er um að ræða spennandi fallbaráttuslag.

Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður
TENGT EFNI

Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður

Linta: Vorum skítlélegir stærsta hluta leiksins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Linta: Vorum skítlélegir stærsta hluta leiksins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.