12.08.26 - 20:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikir: Zirkzee á skotskónum - Guimaraes spilaði sinn fyrsta leik

Mynd: Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: Arsenal
Arsenal og Man Utd voru í eldlínunni í æfingaleikjum í kvöld. Man Utd og Leeds mættust á Írlandi.
Joshua Zirkzee kom Man Utd yfir eftir sendingu frá Bryan Mbeumo eftir skyndisókn. Brenden Aaronson jafnaði metin. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem Man Utd hafði betur.
Joshua Zirkzee kom Man Utd yfir eftir sendingu frá Bryan Mbeumo eftir skyndisókn. Brenden Aaronson jafnaði metin. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem Man Utd hafði betur.
Arsenal fékk Como í heimsókn en Cesc Fabregas, fyrrum leikmaður Arsenal, er stjóri Como. Bruno Guimaraes spilaði sinn fyrsta leik fyrir Arsenal eftir komuna frá Newcastle fyrir 75 milljónir punda á dögunum.
Myles Lewis-Skelly kom Arsenal yfir. Jean Butez, markvörður Como, átti mjög slæmt útspark og boltinn fór í Lewis-Skelly og til Gabriel Martinelli. Hann sendi aftur á Lewis-Skelly sem skoraði. Martin Baturina jafnaði metin eftir að hafa farið illa með tvo varnarmenn Arsenal. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem Arsenal hafði betur.
Everton lagði Newcastle 3-1 í úrvalsdeildarslag fyrr í dag.
Man Utd 1-1 Leeds (5-4 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Joshua Zirkzee ('16)
1-1 Brenden Aaronson ('29 )
Arsenal 1-1 Como (4-3 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Myles Lewis-Skelly ('33 )
1-1 Martin Baturina ('43 )
Newcastle 1-3 Everton
0-1 Thierno Barry ('27 )
0-2 Iliman Ndiaye ('36 , víti)
0-3 Tyrique George ('73 )
1-3 Harvey Barnes ('85 )