12.08.26 - 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Láki tekur við starfi í Sádi-Arabíu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorlákur Árnason er samkvæmt heimildum Fótbolta.net kominn í nýtt starf en hann er að taka við þjálfun kvennaliðs Al Ahli í Sádi-Arabíu.
Félagið hefur á þessum tímapunkti ekki tilkynnt Láka sem þjálfara liðsins en hefur verið án þjálfara frá því í sumar þegar Manar Fraij lét af störfum.

Láki þjálfaði síðasta karlalið ÍBV, hann lét óvænt af störfum í Vestmannaeyjum í desember á síðasta ári eftir að hafa endursamið við Eyjamenn um haustið. Láki náði góðum árangri með nýliða ÍBV sem voru hársbreidd frá sæti í efri hluta Bestu deildarinnar þegar deildinni var skipt í efri og neðri hluta eftir 22 umferðir.
Láki er veraldarvanur 56 ára þjálfari, erlendis hefur hann starfað í Svíþjóð, Hong Kong og Portúgal. Á Íslandi hefur hann starfað fyrir KSÍ sem unglingalandsliðsþjálfari og sinnti einnig öðrum störfum hjá sambandinu. Sem meistaraflokksþjálfari hefur hann verið hjá Þór, Val, Fylki og ÍBV karlamegin og tímabilin 2011 og 2013 stýrði hann kvennaliði Stjörnunnar til Íslandsmeistaratitils og sumarið 2012 vann Stjarnan bikarmeistaratitil undir hans stjórn.
Al Ahli endaði í 2. sæti deildarinnar í Sádi-Arabíu á síðasta tímabili, tólf stigum frá meisturunum í Al Nassr og fjórum stigum á undan Söru Björk Gunnarsdóttur og stöllum hennar í Al Qadisiya. Sara Björk sneri heim til Íslands eftir tímabilið og samdi við uppeldisfélagið Hauka. Fyrsta umferðin á komandi tímabili fer fram 10.-12. september.