Fotbolti.net
12.08.26 - 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ofurbikar Evrópu: PSG vann annað árið í röð

Ofurbikar Evrópu: PSG vann annað árið í röð
Canon

Mynd: EPA

Paris Saint Germain 2 - 1 Aston Villa
1-0 Khvicha Kvaratskhelia ('20 )
1-1 Brian Madjo ('45 )
2-1 Desire Doue ('61 )
PSG vann Ofurbikar Evrópu eftir sigur á Aston Villa í kvöld. Liðin mættust í þessum leik þar sem PSG vann Meistaradeildina á síðustu leiktíð og Aston Villa vann Evrópudeildarinnar. Leikurinn fór fram í Salzburg í Austurríki.

Khvicha Kvaratskhelia kom PSG yfir þegar hann skoraði með föstu skoti úr teignum. Skotið var tiltölulega beint á markið en það var fast og Marco Bizot var í litlu jafnvægi og átti ekki möguleika.

Hinn 17 ára gamli Brian Madjo var í byrjunarliði Aston Villa og fékk svo sannarlega tækifæri til að jafna metin. Fyrst átti hann skalla rétt framhjá, stuttu síðar komst hann í gott færi en skaut rétt framhjá. Hann fékk síðan enn eitt færið undir lok fyrri hálfleiks en skallaði yfir.

Hann gafst ekki upp því honum tókst loksins að skora í blálok fyrri hálfleiksins. Hann fékk sendingu fyrir frá John McGinn og tók boltann á lofti og hann söng í netinu.

Bæði lið fengu tækifæri til að skora í upphafi seinni hálfleiks en Desire Doue braut ísinn eftir rúmlega klukkutíma leik.

Hann fékk sendingu í gegnum vörn Villa og kláraði vel framhjá Bizot. VAR steig inn í en Matty Cash var ekki í línu við samherja sína og gerði Doue réttstæðann.

Alysson kom inn á af miklum krafti hjá Aston Villa. Hann komst auðveldlega framhjá Nuno Mendes undir lok leiksins en það var enginn inn á teignum til að taka á móti sendingunni.

Nær komust Villa menn ekki. PSG vinnur því Ofurbikarinn annað árið í röð. Franska liðið er aðeins annað liðið til að gera það en Real Madrid gerði það árið 2016 og 2017. PSG vann Tottenham í fyrra.
Ofurbikar Evrópu: PSG vann annað árið í röð
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.