lau 12. september 2020 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Zaha sá um Southampton
Zaha skoraði sigurmarkið.
Zaha skoraði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 1 - 0 Southampton
1-0 Wilfred Zaha ('11 )

Crystal Palace byrjar ensku úrvalsdeildina með sigri og þremur stigum í pokann.

Palace tók á móti Southampton á Selhurst Park. Eftir 11 mínútna leik kom fyrsta markið þegar Wilfried Zaha skoraði eftir frábæra sendingu Andros Townsend.

Staðan var 1-0 í hálfleik en í byrjun seinni hálfleiks fékk Kyle Walker-Peters, leikmaður Southampton, að líta rauða spjaldið. Það var hins vegar tekið til baka eftir VAR-skoðun.

Það voru því ellefu gegn ellefu og þannig náði Crystal Palace að halda út og landa sigrinum. Zaha skoraði aftur undir lokin en það mark var dæmt af vegna rangstöðu.

Palace er komið með þrjú stig en Southampton-menn eru að öllum líkindum ekki glaðir með þessa byrjun.

Önnur úrslit:
England: Þægilegur sigur Arsenal í opnunarleiknum

Klukkan 17:00 hefst leikur Liverpool og Leeds. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner