Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, er nálægt því að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið.
Þessi 46 ára gamli þjálfari mun fá góða launahækkun enda náð frábærum árangir með Wolves.
Síðasta tímabil stóð yfir í 383 daga hjá Wolves og sagði Nuno við stjórnina eftir tímabilið að þeir þurfa að styrkja liðið.
Í kjölfarið hefur liðið fengið þrjá portúgalska leikmenn, þá Fabio Silva, Marcal og Vitinha. Liðið vill helst fá einn leikmann í viðbót inn áður en glugginn lokar.
Athugasemdir