Ljóst er að alls sjö leikmenn sem valdir voru í októberhóp íslenska landsliðsins geta ekki tekið þátt á miðvikudaginn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni.
Arnór Sigurðsson er ekki búinn að jafna sig á meiðslunum og verður því ekki með í leiknum.
Fyrir verkefnið var ljóst að Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson yrðu bara með í tveimur fyrstu leikjum landsleikjagluggans.
Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson hafa svo dottið út úr hópnum vegna meiðsla.
Ísland verður því aftur án margra lykilmanna þegar leikið verður gegn Belgíu, efsta liði heimslistans. Útileikurinn í Belgíu í síðasta mánuði tapaðist 5-1.
Leikurinn á miðvikudag verður á Laugardalsvelli og hefst klukkan 18:45.

HÓPURINN NÚNA:
Markmenn
Hannes Þór Halldórsson | Valur | 70 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson | Arsenal | 5 leikir
Ögmundur Kristinsson | Olympiacos | 16 leikir
Varnarmenn
Ari Freyr Skúlason | KV Oostende | 73 leikir
Hörður Björgvin Magnússon | CSKA Moskva | 29 leikir, 2 mörk
Birkir Már Sævarsson | Valur | 92 leikir, 1 mark
Sverrir Ingi Ingason | PAOK | 30 leikir, 3 mörk
Hólmar Örn Eyjólfsson | Rosenborg | 15 leikir, 2 mörk
Hjörtur Hermannsson | Bröndby | 16 leikir, 1 mark
Miðjumenn
Birkir Bjarnason | Brescia | 86 leikir, 13 mörk
Rúnar Már Sigurjónsson | Astana | 25 leikir, 1 mark
Guðlaugur Victor Pálsson | SV Darmstadt 98 | 17 leikir
Arnór Ingvi Traustason | Malmö FF | 34 leikir, 5 mör
Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 4 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson | FC Midtjylland | 6 leikir
Sóknarmenn
Albert Guðmundsson | AZ Alkmaar | 12 leikir, 3 mörk
Jón Daði Böðvarsson | Millwall | 50 leikir, 3 mörk
Kolbeinn Sigþórsson | AIK | 58 leikir, 26 mörk
Viðar Örn Kjartansson | Valerenga IF | 26 leikir, 3 mörk
Sjö leikmenn í október-hópnum hjá A karla verða ekki með í Þjóðadeildar-leiknum gegn Belgíu á miðvikudag: Alfreð, Arnór Sig., Aron Einar, Gylfi Þór, Jóhann Berg, Kári og Ragnar. pic.twitter.com/CLNS10J0Tl
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 12, 2020
Athugasemdir