Fotbolti.net
12.11.16 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá: Zagreb

Henry Birgir: Króatar poppa og drekka Fanta Lemon

Auglýsing
Henry í stuði í Zagreb.

Henry í stuði í Zagreb.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Icelandair
<i>„Þetta er búið að vera veisla. Zagreb er frábær,\"</I> segir íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson sem hefur verið að störfum fyrir 365 í Zagreb undanfarna daga fyrir leikinn gegn Króatíu í kvöld.
Króatía og Ísland mætast á Maksimir leikvanginum klukkan 17:00 í dag en heimamenn eru nokkuð brattir fyrir leikinn.

„Það er ákveðinn bjartsýni en það er líka ákveðinn pirringur út í knattspyrnusambandið yfir ýmsu sem hefur gerst undanfarin ár,\" sagði Henry.

„Það er ekki þessi gullna stemning í kringum liðið eins og verið hefur oft áður. Það er beðið eftir að losna við ákveðinn mann í knattspyrnusambandinu áður en hægt verður að byrja upp á nýtt.\"

Helsta spurningamerkið varðandi byrjunarlið Króata hefur verið um það hvort Luka Modric byrji eða ekki en hann er nýkominn til baka eftir meiðsli.

„Þeir króatísku blaðamenn sem ég hef talað við æla nánast úr hlátri af því að þetta er svo asnalegur feluleikur. Hann er alltaf að fara að spila . Hann er potturinn og pannann í liðinu og þeir segja að það fari 30-40% af liðinu ef hann er ekki með.\"

Leikurinn í dag fer fram fyrir luktum dyrum eftir ólæti króatískra stuðningsmanna í síðustu undankeppni.

„Þeir eru orðnir vanir þessu. Þeir eru alltaf í heimaleikjabanni. Ég var að spyrja hvort að áhorfendur ætluðu að mæta fyrir utan, skjóta upp flugeldum og reyna að vera með stemningu sem myndi hugsanlega skila sér inn á völlinn. Það nennir því enginn, menn ætla bara að poppa og drekka Fanta Lemon heima í stofu,\" sagði Henry.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar spáir Henry meðal annars jafntefli í leiknum í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.