Fotbolti.net
12.11.19 - 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

94 leikir síðan Pochettino breytti ekki liði sínu milli leikja

94 leikir síðan Pochettino breytti ekki liði sínu milli leikja
Canon

Mynd: Getty Images

Mauricio Pochettino hefur stýrt Tottenham í dágóðan tíma. Pochettino hefur þangað til á þessari leiktíð fengið mikið lof fyrir stjórnarhætti sína hjá félaginu en gengi liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska í vetur.

Tottenham hefur gengið illa að sigra leiki í úrvalsdeildinni og situr liðið í 14. sæti deildarinnar sem er langt í frá viðunandi.
Á tímanum 2016-2018 var Pocehttino þekktur fyrir að velja nánast alltaf sama byrjunarliðið. Tímarnir breytast og mennirnir með því Pochettino er ekki lengur í þeim gír.

Pochettino hefur breytt liði sínu milli síðustu 94 leikja liðsins. Pochettino þarf að eiga við það að einhverjar af stjörnum liðsins vilja ekki semja við félagið og hann veit ekki hverjum hann getur treyst til að aðstoða liðið til sigurs.

Jan Vertonghen, Toby Alderweireld, Danny Rose og Christian Eriksen eru þeir leikmenn sem Poch er ekki viss með. Pochettino hefur notast við 4-4-2, 4-2-3-1 og 3-5-2 á leiktíðinni og á enn eftir að finna sitt besta lið.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.