Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   mið 12. nóvember 2025 21:26
Snæbjört Pálsdóttir
Þjálfari Fortuna: Því ætla ég ekki að svara
Kvenaboltinn
Lene Terp, þjálfari Fortuna Hjörring
Lene Terp, þjálfari Fortuna Hjörring
Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Fortuna Hjörring sigraði Breiðablik naumlega 0-1 á Kópavogsvelli fyrr í kvöld í fyrri leik liðanna í 16. liða úrslitum Evrópubikarsins. Aðspurð um frammistöðu síns liðs svaraði Lene Terp þjáfari Fortuna Hjörring, 

„Í svona leikjum erum við bara stundum ánægð með að vinna og við náðum sigrinum þannig að við erum ánægð með það. Það er alltaf erfitt þegar maður mætir liði sem maður þekkir ekki, og undir aðeins erfiðari eða öðruvísi kringumstæðum en við erum vön. Þannig í þessu tilfelli erum við bara ánægð með sigurinn. En þetta er bara fyrri leikur af tveimur."


Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  1 Fortuna Hjörring

„Ef ég væri virkilega ánægð, þá hefðum við verið aðeins betri í að tengja spil og kannski skorað eitt mark í viðbót. En í heildina er ég ánægð með bæði úrslitin og frammistöðuna."

Seinni leikur liðanna verður á heimvelli Fortuna Hjörring eftir viku ætlar Lene að breyta einhverju fyrir þann leik?

„Því ætla ég ekki að svara"  svaraði hún og hló, ,,En ég get þó sagt að aðstæður verða aðeins aðrar, því við spilum á grasvelli og á þessum árstíma í Danmörku getur grasið verið svolítið drullugt. Það mun breyta leiknum því það þarf að spila á annan hátt. Þannig að svoleiðis verður það eftir viku."

„Við þekkjum nokkra leikmenn Breiðabliks og höfðum horft á þá, þannig að það var ekkert mjög óvænt. En það er alltaf munur á að horfa á myndbönd og svo standa sjálfur á hliðarlínunni. Ég held þetta hafi verið góður leikur, bæði lið fengu færi, og ég vona að áhorfendur hafi notið hans."

Fortuna Hjörring eins og áður segir fer með 0-1 stöðu út fyrir leikinn í næstu viku heldur Lene að það verði nóg?

„Ég vona það. Ég vona það."

Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner