Fotbolti.net
19.08.09 - 17:05
Hafliði Breiðfjörð

Garðar Gunnlaugs: FIFA getur bannað þeim að keppa

Garðar Bergmann Gunnlaugsson.

Garðar Bergmann Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Framherjinn Garðar Gunnlaugsson segir ekki rétt að hann sé búinn að komast að samkomulagi við CSKA Sofia í Búlgaríu en hann hefur vísað máli sínu til Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, þar sem félagið hefur ekki greitt honum laun í fjóra mánuði.
,,Eins og er þá er mál mitt hjá FIFA og þeir taka það fyrir á næstu dögum. Félögin eru líka að reyna að ná sátt við mig því þeir eru í slæmum málum ef þetta fer alla leið hjá FIFA,\" sagði Garðar við Fótbolta.net í dag.

Þjálfarinn tók útlendinga úr hópnum
,,Þeir skulda mér fjögurra mánaða laun. Þeir eru í fjárhagsvandræðum og það eru nokkrir aðrir leikmenn sem eru í þessu veseni. Þeir virðast vera að borga leikmönnunum sem eru að spila en kjósa að borga okkur sem erum ekki í myndinni ekki,\" bætti hann við en á ekki von á fleiri tækifærum með liðinu.

,,Þjálfarinn er alveg búinn að loka á það, það er ekki tengt þessu en hann kom bara til félagsins í vor og byrjaði á að taka útlendinga út úr hópnum og byggir liðið aðallega upp á heimamönnum. Við erum því nokkrir útlendingar sem erum ekkert að fá borgað,\" sagði hann og aðspurður sagðist hann ekki sjá fram á að vera áfram í Búlgaríu heldur leita annað..

,,Umboðsmaðurinn minn er að vinna í þessum málum og reyna að finna einhverja farsæla lausn. Ég býst ekki við að vera áfram hérna í Búlgaríu. Það er í raun ekkert annað lið sem hefur efni á að gera svona samning nema CSKA og þeir hafa ekki efni á að standa við hann svo það er ekki í myndinni að vera áfram hérna.\"

Spenntur fyrir Bandaríkjunum
Garðar hafði áður verið hjá Norrköping í Svíþjóð en hugur hans stefnir ekki þangað að nýju heldur vill hann vera áfram á meginlandi Evrópu eða fara jafnvel til Bandaríkjanna.

,,Ég myndi helst ekki fara aftur til norðurlandanna og helst vera áfram á meginlandinu. Svo er ég jafnvel spenntur fyrir Bandaríkjunum líka. Ég hef aðeins verið að skoða það og verið í sambandi við umboðsskrifstofur þar úti svo sé ég hvað kemur út úr því,\" sagði Garðar.

Ekki á leið í íslensku deildina
Hér á landi lék Garðar bæði með ÍA og Val en bræður hans Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir skiptu í sumar frá ÍA til Vals.

Garðar útilokar hinsvegar að snúa aftur heim og aðspurður hvort hann vildi ekki fá að leika með bræðrum sínum áður en ferlinum lyki sagði hann. ,,Ég væri til í einn leik með þeim en ekki meira,\" enda stefnir hann ekki í íslensku deildina í bili.

FIFA gæti bannað félagið frá keppni
Staða Garðars gagnvart búlgarska félaginu er nokkuð sterk nú þegar hann hefur leitað aðstoðar FIFA en hann segir að alþjóða knattspyrnusambandið geti bannað félagið frá keppni greiði þeir honum ekki það sem hann á inni.

,,Þetta ætti vonandi að gerast á mánudaginn. Það er meira en vika síðan ég fór með málið til FIFA. Þeir rifta samningnum fyrir mig og krefja félagið svo um bætur. Ef félagið borgar ekki þær bætur bannar FIFA þeim að keppa bæði hér heima og í Evrópu. Þetta eru bara reglur hjá þeim svo félög komist ekki upp með að borga ekki leikmönnum,\" sagði Garðar að lokum við Fótbolta.net.
Garðar í leik með Val.

Garðar í leik með Val.

Canon

Mynd: Boltamyndir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.