05.12.09 - 18:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Fyrrum liðsfélagar Garðars hjá CSKA voru lamdir fyrir að kvarta

Úr leik Fulham og CSKA Sofia í fyrradag.

Mynd: Getty Images

Garðar Gunnlaugsson var í ítarlegu og einlægu spjalli í útvarpsþættinum Fótbolta.net í hádeginu. Hann sagði afar áhugaverða sögu af liðsfélögum sínum sem komust í hann krappann, og rúmlega það.
Eins og greint var frá um daginn voru níu af fyrrum liðsfélögum Garðars hjá búlgarska liðinu CSKA Sofia settir í agabann fyrir fyllerí.
Þeir voru ekki á eitt sáttir við það og kvörtuðu sáran yfir agabanninu, bæði við aðra liðsfélaga, þjálfara og umfram allt gerðu þeir óánægju sína opinbera í blöðunum.
Garðar er enn í sambandi við nokkra stráka í liðinu og sagði í útvarpsþættinum söguna á bakvið söguna.
,,Þið eruð kannski búnir að lesa þetta með agabannið en eitt hafið þið ekki lesið og það eru eftirmálarnir af þessu. Þeir voru kallaðir á fund á veitingastað og héldu að þeir væru að fara að hitta forsetann hjá félaginu.\"
,,Inn löbbuðu síðan sex stórir lífverðir og buffuðu þá í klessu. Forsetinn var bara að senda skilaboð um að þeir ættu ekki að gera þetta aftur. Ég held að þeir hafi ekki einu sinni smakkað áfengi eftir þetta,\" sagði Garðar Gunnlaugsson.
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum í dag.
(Hægri smellið og veljið Save Target As til að hlaða niður)