Lið vikunnar í enska - Gylfi og Mkhitaryan á miðjunni

Lukasz Fabianski (Swansea) - Hélt hreinu í mikilvægum sigri á Sunderland.

Mynd: Getty Images

Hector Bellerin (Arsenal) - Snéri aftur eftir meiðsli og hjálpaði Arsenal að vinna Stoke.

Mynd: Getty Images

Virgil van Dijk (Southampton) - Hjálpaði Southampton að halda í hreinu í sjötta skipti á tímabilinu.

Mynd: Getty Images

Phil Jones (Manchester United) - Eins og klettur í vörninni gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Jose Holebas (Watford) - Lagði upp tvö mörk úr vinstri bakverðinum í 3-2 sigri á Everton.

Mynd: Getty Images

Andy King (Leicester) - Tók stöðu Danny Drinkwater sem var í banni gegn Manchester City. King þakkaði fyrir sig með marki í 4-2 sigri.

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson (Swansea) - Swansea skorar varla mark án þess að Gylf komi nálægt því. Skoraði og lagði upp um helgina.

Mynd: Getty Images

Henrikh Mkhitaryan (Man Utd) - Skoraði sigurmarkið gegn Tottenham og jafnframt sitt fyrsta mark á Old Trafford.

Mynd: Getty Images

Diego Costa (Chelsea) - Framherjinn öflugi skoraði sigurmarkið gegn WBA af harðfylgi.

Mynd: Getty Images

Jamie Vardy (Leicester) - Skoraði í fyrsta skipti síðan í september og þá fór mörkunum að rigna inn. Þrenna gegn Manchester City.

Mynd: Getty Images

Stefano Okaka (Watford) - Skoraði tvívegis í sigrinum á Everton.

Mynd: Getty Images




