Lið vikunnar í enska - Man City nálgast Arsenal og ótrúlegt klúður Palmer
Arsenal gerði jafntefli gegn Brentford í gær 1-1 og er með fjögurra stiga forystu á Manchester City sem átti ekki í nokkrum vandræðum með Fuham og vann 3-0 á miðvikudaginn.

Markvörður: Caoimhin Kelleher (Brentford) - Átti gríðarlega mikilvæga markvörslu gegn Gabriel Martinelli í lokin.

Mynd: EPA

Lamare Bogarde (Aston Villa) - Miðjumaður sem leysir af og til hægri bakvörðinn. Gerði það einmitt með mikilli prýði í sigri gegn Brighton.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Skoraði eina markið gegn Sunderland og var mjög traustur varnarlega.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Marc Guehi (Manchester City) - Eins og hann hafi spilað fyrir City í átta ár.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Bashir Humphreys (Burnley) - Frábær í endurkomusigri Burnley, varnarlega og sóknarlega.

Mynd: Burnley

Miðjumaður: Mateus Fernandes (West Ham) - Orkumikill og hæfileikaríkur. Átti skínandi leik gegn Manchester United.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Nico O'Reilly (Manchester City) - Geggjað að sjá hann á miðjunni. Skoraði stórglæsilegt mark.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Jacob Ramsey (Newcastle) - Steig upp og skoraði sigurmarkið gegn Tottenham.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Cole Palmer (Chelsea) - Mark og stoðsending í 2-2 jafntefli gegn Leeds. En það sem allir eru að tala um er ÞETTA ótrúlega dauðafærisklúður hans í blálokin!

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Joao Pedro (Chelsea) - Fimm í fimm! Sá er á flugi!

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Jörgen Strand Larsen (Crystal Palace) - Palace tapaði en sá norski skoraði tvö.

Mynd: Crystal Palace


Mynd: BBC

Stjórinn: Pep Guardiola (Manchester City) - Setja aukna pressu á Arsenal!

Mynd: EPA


