„Ég og Haddi áttum gott samtal um hvað væri best fyrir mig"
Allir í gallana!

Hefur spilað vel með Völsungi.

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Völsungur þarf að vinna á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Er á láni frá KA.

Mynd: Völsungur

Borja Martin hefur gert frábæra hluti með Völsung.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

ALLIR Í VÖLSUNGS GALLANA OG HÖLDUM OKKUR Í LENGJUDEILDINNI

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Haddi - Hallgrímur Jónasson - er þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur spilað vel með Völsungi.

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Leikurinn, eins og allir leikir umferðarinnar, hefst klukkan 14:00 og fer fram á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi.
Fótbolti.net ræddi við Dagbjart Búa Davíðsson, leikmann Völsungs, um leikinn.

Lífsbaráttu laugardagur í Lengjunni - Þrjú lið í hættu
Þýðir ekkert að hugsa um það
Horfir þú í það að ef þið vinnið, þá munið þið halda sætinu í deildinni, að sigurinn muni duga, eða er ekki hægt að hugsa út í það?
„Það þýðir ekkert að hugsa út í það við erum með fullan fókus á okkar leik og klárum það verkefni og svo er hægt að pæla í hinu eftir leik."
Sigur Völsungs mun ekki duga ef Grindavík vinnur Ægir og ÍR fær stig gegn Leikni.
Mjög sáttur með tímabilið
Hvernig líður þér með tímabilið til þessa?
„Ég er mjög sáttur með tímabilið, en það veltur mikið á leiknum á morgun, mér finnst ég hafa spilað mjög vel í sumar, lagt inn mikla vinnu fyrir liðið og skilað inn mörkum og stoðsendingum. Eina sem ég er smá svekktur með er að ég tognaði smávægilega aftan í lærinu og missti af nokkrum vikum. En annars er ég mjög sáttur með liðið og stígandann í okkur seinni hluta tímabilsins."
Dagbjartur Búi er sóknarsinnaður miðjumaður, fæddur 2006, sem hefur skorað fjögur mörk í Lengjudeildinni.
Sá ekki fram á nóg af tækifærum hjá KA
Hvernig kom til að þú ákvaðst að fara á láni frá KA í Völsung?
„Ég ákvað að fara á láni í Völsung frá KA vegna þess að ég sá ekki fyrir mér að ég myndi fá að spila eins mikið og ég vildi hjá KA eftir að hafa misst af öllu undirbúningstímabilinu vegna kviðslitsaðgerðar. Svo var sótt fullt af sóknarmönnum fyrir tímabilið, þannig ég og Haddi áttum gott samtal um hvað væri best fyrir mig og Völsungur var niðurstaðan."
Frábær þjálfari
Hvað hefur breyst eftir að Borja Martin kom inn hjá ykkur?
„Það hefur allskonar breyst eftir að hann kom til okkar, Borja er frábær þjálfari og er búinn að gera mjög góða hluti fyrir Völsung. Við vorum með tvö stig áður en hann kom og erum núna með 23 stig og erum þremur stigum frá því að slá stigamet Völsungs í Lengjudeildinni."
„Borja er góður í að fá menn til að sýna sínar bestu hliðar inn á vellinum og hann setti bara alvöru standard í þetta um leið og hann kom."
Fimm sigrar í síðustu sjö, hver er lykillinn að því?
„Hann er búinn að setja síðustu leiki upp eins og úrslitaleiki um að halda okkur í deildinni og það er búið að virka vel hjá honum, við mætum í þennan leik sem er um helgina klárir í enn einn úrslitaleikinn."
Allir í gallana
Stuðningsmenn Völsungs ætla að hittast á Rauða Ljóninu fyrir leik. Ertu með einhver skilaboð til þeirra?
„Það hefur verið frábær stuðningur í allt sumar og við þurfum á ykkur að halda á morgun, ALLIR Í VÖLSUNGS GALLANA OG HÖLDUM OKKUR Í LENGJUDEILDINNI," segir Dagbjartur að lokum.

Völsungur þarf að vinna á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Er á láni frá KA.

Mynd: Völsungur

Borja Martin hefur gert frábæra hluti með Völsung.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

ALLIR Í VÖLSUNGS GALLANA OG HÖLDUM OKKUR Í LENGJUDEILDINNI

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Haddi - Hallgrímur Jónasson - er þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 21 | +33 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 21 | +23 | 40 |
| 3 | Fylkir | 21 | +14 | 40 |
| 4 | HK | 21 | +11 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 21 | +8 | 35 |
| 6 | Leiknir R. | 21 | +2 | 28 |
| 7 | Grótta | 21 | -5 | 27 |
| 8 | Vestri | 21 | -11 | 27 |
| 9 | ÍR | 21 | -7 | 25 |
| 10 | Grindavík | 21 | -10 | 24 |
| 11 | Völsungur | 21 | -14 | 23 |
| 12 | Ægir | 21 | -44 | 8 |
