04.09.26 - 14:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH mætir Frankfurt og Breiðablik fer til Póllands

FH mætir Frankfurt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik vann afskaplega sannfærandi sigur í sínu einvígi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH mætir Frankfurt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag var dregið í 2. umferð Evrópubikarsins, 32-liða úrslitin, en keppnin er næststerkasta Evrópukeppnin í kvennaboltanum og var fyrst keppt í henni á síðasta tímabili.
Tvö íslensk lið voru í pottinum, Breiðablik og FH. Breiðablik vann átta marka sigur á rúmensku liði í 1. umferð og FH vann nauman sigur á Apollon frá Kýpur.
Breiðablik, sem var í efri styrkleikaflokki í drættinum, mætir Czarni frá Póllandi í 2. umferð og spilar fyrri leikinn á heimavelli.

TENGT EFNI
Guðni Eiríks: Við erum með langyngsta liðið í þessari Evrópukeppni
FH, sem var í neðri styrkleikaflokki í drættinum, mætir þýska liðinu Eintracht Frankfurt og byrjar það einvígi á útivelli.
Spilað verður 23 og 30. september.
Fleiri Íslendingalið voru í pottinum. Bröndby, hvar Hafrún Rakel Halldórsdóttir spilar, dróst á móti Spoting, Hlín Eiríksdóttir og stöllur hennar í Malmö mæta St. Pölten, Vålerenga með Örnu Eiríksdóttur innanborðs mætir Feyenoord, Diljá Ýr Zomers mætir HJK með liði sínu Brann, Selma Sól Magnúsdóttir fer með Rosenborg til Liberec í Tékklandi og þær Guðrún Arnardóttir og Ída Marín Hermannsdóttir í Hammarby mæta Rangers.