Ægir Jarl: Svaf lítið nóttina eftir leikinn

Ég átti bara að klára það færi, ekkert flóknara

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er bara að fíla hlutverkið mjög vel, finnst það hafa hentað mér og liðinu vel

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilar sem varnarsinnaður miðjumaður hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur vann stórsigur í fyrri leiknum í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir sem hafa verið á bekknum og komið inn hafa oft breytt leikjum sem er mjög mikilvægt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég átti bara að klára það færi, ekkert flóknara

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Ægi Jarl Jónasson sem hefur verið í lykilhlutverki inn á miðsvæðin hjá Fram á tímabilinu.
„Leikurinn leggst bara vel í mig, það er spennandi verkefni að fara í leik á móti toppliðinu. Við þurfum að eiga toppleik til að ná í úrslit," segir Ægir.
Horfir þú á leikinn sem tækifæri til að kveikja almennilega í og búa til toppbaráttu?
„Auðvitað væri það mjög skemmtilegt fyrir deildina að fá spennu í þetta á lokasprettinum en Víkingarnir eru búnir að vera frábærir í sumar."
Smollið saman sem lið
Hver er lykillinn að góðri spilamennsku og góðum úrslitum Fram í sumar og hvernig er að spila með Frey, Simon Tibbling og Fred inn á miðjunni?
„Við höfum bara verið að smella saman sem lið og finnst vera mikil liðsheild hjá okkur. Menn eru tilbúnir að fórna sér fyrir hvorn annan. Þeir sem hafa verið á bekknum og komið inn hafa oft breytt leikjum sem er mjög mikilvægt."
„Þetta eru frábærir fótboltamenn sem þú nefnir og auðvelt að spila með þeim."
Áttu ekki góðan dag og Víkingarnir voru mjög góðir
Eina liðið sem þið hafið eiginlega ekki átt séns í er Víkingur í fyrri leiknum, hefuru horft eitthvað til baka í þann leik og spáð í því hvað sé hægt að gera svo þetta endurtaki sig?
„Við áttum bara ekki góðan dag þá og margt sem við gátum gert betur en að sama skapi voru þeir líka mjög góðir og beittir í þeim leik."
Líður vel í sínu hlutverki
Þú hefur spilað í varnarsinnuðu hlutverki á miðjunni, hvernig ertu að fíla þetta hlutverk?
„Ég er bara að fíla hlutverkið mjög vel, finnst það hafa hentað mér og liðinu vel. Þetta er dálítið svipað og ég var að spila í Danmörku en þá var ég að sækja aðeins meira. Hjá KR var ég svo enn framar."
Átti að skora, ekkert flóknara
Aðeins út í leikinn gegn KA sem endaði 2-2. Hefur þú náð góðum svefni eftir dauðafærið og áttir þú að fá víti undir lokin?
„Það var lítill svefn nóttina eftir en ég átti bara að klára það færi, ekkert flóknara. Mér fannst vel hægt að dæma á það atvik í lokin en það er bara að baki. Áfram gakk," segir Ægir. Færið má sjá í spilaranum hérna að neðan.

Ég er bara að fíla hlutverkið mjög vel, finnst það hafa hentað mér og liðinu vel

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilar sem varnarsinnaður miðjumaður hjá Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur vann stórsigur í fyrri leiknum í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir sem hafa verið á bekknum og komið inn hafa oft breytt leikjum sem er mjög mikilvægt

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 21 | +46 | 52 |
| 2 | KR | 21 | +27 | 44 |
| 3 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 21 | +3 | 30 |
| 5 | Keflavík | 21 | -4 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Stjarnan | 21 | -8 | 27 |
| 8 | Valur | 21 | -7 | 24 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |
