„Við sem erum uppaldir í hverfinu þekkjum að það þarf enga auka hvatningu"
ÍR með bakið upp við vegg

Fæddur 2003 og hefur spilað með meistaraflokki ÍR síðan 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Auðvitað hellingur sem við munum læra af þessu tímabili

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Þetta er alls ekki það sem við sáum fyrir okkur þegar við byrjuðum tímabilið, en núna erum við komnir í þessa stöðu og við þurfum bara að leggja allt í sölurnar til að vinna leikinn á morgun

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

'Það er mikilvægt að ÍR-ingar fjölmenni á leikinn á morgun og sýni alvöru stuðning'

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mikil spenna og tilhlökkun fyrir leiknum hjá mér og öllu liðinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fæddur 2003 og hefur spilað með meistaraflokki ÍR síðan 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Leiknir mun enda í 6.-8. sæti deildarinnar en hjá ÍR er talsvert meira undir en bara montrétturinn í Breiðholti. Liðið er í fallhættu og þarf að vinna leikinn til að tryggja sér sætið í deildinni. Ef ÍR tapar og bæði Grindavík og Völsungur vinna sína leiki, þá fellur ÍR úr deildinni.
Fótbolti.net ræddi við Bergvin Fannar Helgason sem er uppalinn ÍR-ingur og næstmarkahæsti leikmaður liðsins með sex mörk á tímabilinu.

Lífsbaráttu laugardagur í Lengjunni - Þrjú lið í hættu
„Þessi leikur gegn Leikni leggst bara vel í okkur. Það er mikil tilhlökkun og vonandi verður þetta bara skemmtilegur leikur. Við þurfum að mæta vel gíraðir í þennan leik, það er auðvitað mikið undir og við þurfum því að mæta klárir. Þetta er auðvitað derby leikur og fyrir okkur sem erum uppaldir í hverfinu þekkjum vel að það þarf ekki neina auka hvatningu komandi inn í þessa leiki."
„Leiknismenn mæta örugglega mótiveraðir inn í leikinn líka vitandi að ef allt fer á versta veg að þeir geti fellt okkur, og þess vegna verða menn að vera klárir þegar leikurinn byrjar á morgunn," segir Bergvin.
Leiðinleg staða
Er eitthvað stress farandi inn í leikinn, leiðinlegt að vera í þessari stöðu?
„Að sjálfsögðu er leiðinlegt að vera í þessari stöðu sem við erum komnir í. Þetta er alls ekki það sem við sáum fyrir okkur þegar við byrjuðum tímabilið, en núna erum við komnir í þessa stöðu og við þurfum bara að leggja allt í sölurnar til að vinna leikinn á morgun. En annars er bara mikil spenna og tilhlökkun fyrir leiknum hjá mér og öllu liðinu."
Bæði lið spili til sigurs
Heldur þú að það skipti einhverju máli komandi inn í leikinn að það er ekkert undir hjá Leikni, en mikið undir hjá ykkur?
„Nei, svo sem ekki. Ég held að bæði lið komi inn í leikinn til að vinna hann þrátt fyrir að Leiknir hafi í raun að engu að keppa, nema það auðvitað að mögulega geta fellt okkur. Ég held því að bæði lið mæti af krafti inn í leikinn og geri allt til þess að vinna hann."
Mikilvægt að fá góðan stuðning
Hvaða skilaboð ertu með til stuðningsmanna?
„Það er mikilvægt að ÍR-ingar fjölmenni á leikinn á morgun og sýni alvöru stuðning. Þetta er mjög mikilvægur leikur sem við erum að fara í og því er mikilvægt að okkar fólk komi og styðji okkur almennilega. Í fyrra var mjög góð mæting á þennan leik og vonandi gerist eitthvað svipað á morgun."
Óásættanlegt
Hvernig líður þér með tímabilið til þessa? Hvað hefur vantað upp á hjá ÍR að þínu mati?
„Eins og ég sagði áðan að þá var þetta alls ekki það sem við lögðum upp með í upphafi tímabils að vera í einhverjum fallslag í síðasta leik. Við ætluðum að gera miklu betur. Og það er auðvitað margt sem við hefðum getað gert betur, við erum búnir að fá á okkur flest mörk í deildinni og það er eitthvað sem er ekki ásættanlegt og eitthvað sem við þurfum að bæta á næsta tímabili. Síðan er auðvitað margt sem hefur ekki fallið með okkur en það þýðir ekkert að vera að tala um það núna heldur bara mæta klárir á morgunn og leggja allt í sölurnar til að vinna. Svo er auðvitað hellingur sem við munum læra af þessu tímabili, bæði eitthvað sem við gerðum vel og eitthvað sem betur mátti fara."
Vil bara það sem er best fyrir börnin í Breiðholti og ÍR
Að lokum, hver var og er þín skoðun þegar rætt er um mögulega sameiningu Leiknis og ÍR
„Það er eitthvað sem ég ætla kannski ekkert að vera að blanda mér í að svo stöddu. Ég vil bara það sem er best fyrir fólkið og börnin í Breiðholti og auðvitað það sem er best fyrir ÍR. En annars ætla ég ekki að vera að tjá mig eitthvað um það núna," segir Bergvin Fannar að lokum.

Auðvitað hellingur sem við munum læra af þessu tímabili

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Þetta er alls ekki það sem við sáum fyrir okkur þegar við byrjuðum tímabilið, en núna erum við komnir í þessa stöðu og við þurfum bara að leggja allt í sölurnar til að vinna leikinn á morgun

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

'Það er mikilvægt að ÍR-ingar fjölmenni á leikinn á morgun og sýni alvöru stuðning'

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mikil spenna og tilhlökkun fyrir leiknum hjá mér og öllu liðinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 21 | +33 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 21 | +23 | 40 |
| 3 | Fylkir | 21 | +14 | 40 |
| 4 | HK | 21 | +11 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 21 | +8 | 35 |
| 6 | Leiknir R. | 21 | +2 | 28 |
| 7 | Grótta | 21 | -5 | 27 |
| 8 | Vestri | 21 | -11 | 27 |
| 9 | ÍR | 21 | -7 | 25 |
| 10 | Grindavík | 21 | -10 | 24 |
| 11 | Völsungur | 21 | -14 | 23 |
| 12 | Ægir | 21 | -44 | 8 |

