Fotbolti.net
04.09.26 - 22:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

O'Neil: Vorum betra liðið lengst af

O'Neil: Vorum betra liðið lengst af
Canon

Mynd: EPA

Ipswich tapaði 2-0 gegn Liverpool á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Gary O'Neil, stjóri Ipswich, var stoltur af nýliðunum. Liðið tapaði 5-2 gegn Man Utd í síðustu umferð og er með þrjú stig eftir sigur á Sunderland í fyrstu umferð.
„Ég er stoltur af hópnum. Mér fannst við frábærir. Tvö mistök á fyrstu tíu mínútunum gerði þetta erfitt en við vorum betra liðið lengst af. Fleiri skot, nokkur mjög góð færi," sagði O'Neil.

„Ég talaði um áföllin gegn Man Utd og um að svara þeim betur, mér fannst við gera það mjög, mjög vel. Við tökum auðvitað engin stig sem er alltaf erfitt gegn Liverpool og það er það sem við ætluðum að gera. En það voru mörg góð merki á lofti."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.