Fotbolti.net
04.09.26 - 14:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keyptur á 30 milljónir punda en er ekki í Meistaradeildarhópnum

Keyptur á 30 milljónir punda en er ekki í Meistaradeildarhópnum
Canon

Mynd: Aston Villa

Taylor Harwood-Bellis er ekki í Meistaradeildarhópnum hjá Aston Villa þrátt fyrir að hafa verið keyptur á 30 milljónir punda undir lok félagaskiptagluggans.

Enski miðvörðurinn, sem er 24 ára, er ekki sá eini sem kemst ekki í hópinn því þeir Modou Keba Cisse og sóknarmaðurinn ungi, Brian Madjo, sem skoraði gegn PSG í Ofurbikarnum, eru ekki heldur i hópnum hjá Unai Emery.
Harwood-Bellis til Aston Villa (Staðfest)
TENGT EFNI

Harwood-Bellis til Aston Villa (Staðfest)

Þar sem Aston Villa er einungis með tvo uppalda leikmenn í hópnum þá mega einungis 23 vera í hópnum en venjulega má vera með 25 í Meistaradeildarhópnum.

Aston Villa hefur leik í Meistaradeildinni á þriðjudag þegar liðið sækir Club Brugge heim. Ef Aston Villa kemst í útsláttarkeppnina er hægt að gera breytingu á hópnum.

„Þú ert með auka bónus í Meistaradeildinni - það er ekkert annað en spenna. Ég get ekki beðið eftir því að byrja og sýna að ég geti vonandi sýnt að ég eigi heima á stærsta sviðinu. Við höfum séð velgengni félagsins í Evrópu, liðið vann Evrópudeildina og fór langt í Meistaradeildina. Ég veit að liðið getur gert góða hluti í Evrópu líka," sagði Harwood-Bellis þegar hann mætti til Aston Villa.
Emery valdi ekki Harwood-Bellis í hópinn.

Emery valdi ekki Harwood-Bellis í hópinn.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.