Fotbolti.net
04.09.26 - 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki gegn Ísaki og félögum

Þýskaland: Innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki gegn Ísaki og félögum
Canon

Mynd: EPA

Stuttgart 4 - 1 Koln
1-0 Bilal El Khannouss ('39 )
2-0 Grischa Promel ('60 )
3-0 Ermedin Demirovic ('75 )
3-1 Ramon Hendriks ('81 , sjálfsmark)
4-1 Josha Vagnoman ('90 )
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Köln þegar liðið tapaði gegn Stuttgart í þýsku deildinni í kvöld.

Bilal El Khannouss sá til þess að Stuttgart var með forystuna í hálfleik. Grischa Promel bætti öðru markinu við eftir klukkutíma leik og Ermedin Demirovic fór langt með að tryggja sigurinn stundafjórðungi síðar.

Ramon Hendriks skoraði síðan sjálfsmark og minnkaði muninn fyrir Köln en Josha Vagnoman innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki. Varnarmaður Köln skallaði boltann út úr teignum en Vagnoman stóð í D-boganum og tók skotið viðstöðulaust á lofti og boltinn söng í netinu.

Bæði lið eru með þrjú stig í 7. og 8. sæti eftir tvær umferðir.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Bayern1+43
2Freiburg1+33
3Augsburg1+33
4RB Leipzig1+33
5Dortmund1+23
6Elversberg1+13
7Stuttgart2-13
8Köln2-23
9Union Berlin101
10Frankfurt101
11Mainz101
12Paderborn101
13Leverkusen1-10
14Hoffenheim1-10
15Hamburger1-20
16Werder1-30
17Schalke 041-30
18Gladbach1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.