04.09.26 - 07:10
Elvar Geir Magnússon
Vardy og Martial orðaðir við Everton

Everton gæti fengið Jamie Vardy.

Mynd: EPA

Anthony Martial.

Mynd: EPA

Wilfried Zaha.

Mynd: EPA

Everton gæti fengið Jamie Vardy.

Mynd: EPA

Framundan er spennandi helgi í boltanum, ný umferð í ensku úrvaldsdeildinni hefst með leik Ipswich og Liverpool í kvöld. Hér er slúðurpakkinn en félagslausir leikmenn eru enn fáanlegir þó glugginn sé lokaður.
Everton íhugar að reyna að fá reynsluboltann Jamie Vardy (39) eftir að félaginu mistókst að fá sóknarmann á lokadegi félagaskiptagluggans. Þessi fyrrum enski landsliðsmaður er án félags eftir að hafa yfirgefið Cremonese. (The Sun)
David Moyes og félagar gætu einnig leitað til franska sóknarmannsins Anthony Martial (30), fyrrum leikmanns Manchester United, sem er einnig án félags eftir að hafa yfirgefið mexíkóska liðið Monterrey. (Talksport)
Kantmaðurinn Wilfried Zaha (33) frá Fílabeinsströndinni er einn þeirra kosta sem AC Milan skoðar en félagið leitar að leikmanni án samnings til að styrkja sóknarlínu sína. (Gazzetta dello Sport)
Brasilíski sóknartengiliðurinn Estevao Willian (19) hefur áhyggjur af því hversu lítinn spiltíma hann fær með Chelsea undir stjórn Xabi Alonso og gæti íhugað að fara frá félaginu í janúar ef staðan breytist ekki. (ESPNl)
Arsenal tryggði sér möguleika á að kalla Ethan Nwaneri (19) til baka í janúar ef þörf krefur, en hann hefur gengið til liðs við Borussia Dortmund á láni út tímabilið. (Sky Sports Þýskalandi)
Kantmaðurinn Chemsdine Talbi hjá Sunderland (21) á í viðræðum við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu en tyrknesku félögin Fenerbahce og Galatasaray hafa einnig sýnt þessum marokkóska landsliðsmanni áhuga. (Talksport)
Arabian Falcons, sem spilar í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, vill fá Jadon Sancho (26) fyrrum kantmann Manchester United. Jonjo Shelvey er þjálfari liðsins. (Daily Mirror)
Argentíski sóknarmaðurinn Lautaro Martinez (29) segir það heiður að vekja áhuga Barcelona en hann hafi viljað vera áfram hjá Inter í Mílanó. (Sky Sports Ítalíu)