Fotbolti.net
04.09.26 - 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ísak Snær skoraði í kærkomnum sigri

Ísak Snær

Ísak Snær

Canon

Mynd: Lyngby

Ísak Snær Þorvaldsson var á skotskónum þegar Lyngby nældi í sinn fyrsta sigur í dönsku deildinni í kvöld.

Ísak sá til þess að liðið var með forystu í hálfleik og liðið bætti við öðru marki í seinni hálfleik. 2-0 lokatölur. Davíð Helgi Aronsson kom inn á fyrir Ísak undir lok leiksins og Daníel Freyr Kristjánsson kom einnig inn á á sama tíma.
Valgeir Lunddal Friðriksson á enn eftir að spila fyrir Viborg en hann er að kljást við meiðsli. Viborg er í 5. sæti með 13 stig eftir sjö umferðir en Lyngby er í 8. sæti með sex stig.

Jakob Gunnar Sigurðsson var í byrjunarliði Hillerod sem gerði 1-1 jafntefli gegn Koge í næst efstu deild í Danmörku. Hillerod er í 10. sæti með 5 stig eftir sjö umferðir.

Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasund sem vann 2-0 sigur á Start í norsku deildinni. Álasund er í 14. sæti með 18 stig eftir 19 umferðir. Amin Cosic var hvíldur þegar Viking gerði 1-1 jafntefli gegn Sandefjord. Viking er í 2. sæti með 44 stig, þremur stigum á eftir toppliði Bodö/Glimt.

Stefán Teitur Þórðarson, fyrirliði Hannover, spilaði klukkutíma í 2-2 jafntefli gegn Karslruher í næst efstu deild í Þýskalandi. Hannover er með fjögur stig eftir fjórar umferðir. St. Pauli, lið Gísla Gottskálk Þórðarsonar, gerði 2-2 jafntefli gegn Armenia Bielefeld en Gísli er á meiðslalistanum. St.Pauli er með þrjú stig.

Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn á þegar Norrköping gerði 2-2 jafntefli gegn Ljungskile í næst efstu deild í Svíþjóð. Norrköping er á toppnum með 48 stig eftir 22 umferðir.

Helgi Fróði Ingason spilaði 72 mínútur í 4-2 sigri Helmond gegn Venlo í næst efstu deild í Hollandi. Helmond er með fimm stig eftir fimm umferðir.
Stefán Teitur

Stefán Teitur

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.