Fotbolti.net
04.09.26 - 16:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Einar Freyr: Hugurinn leitar auðvitað út eftir tímabilið

Þetta var fyrsti af sjö sigrum

Þetta var fyrsti af sjö sigrum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Einar Freyr Halldórsson var efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra og er í stóru hlutverki hjá Þór sem situr í 10. sæti Bestu deildarinnar.

Miðjumaðurinn verður 18 ára seinna í þessum mánuði og hefur vakið athygli erlendra félaga. Hann ræddi við Fótbolta.net um tímabilið til þessa og leikinn gegn FH á sunnudag.

Leikur Þórs og FH fer fram á VÍS vellinum á sunnudag og hefst klukkan 14:00
„Leikurinn leggst bara mjög vel í mig, við þurfum að mæta með alveg eins hugarfar eins og við gerðum á móti ÍBV og leggja allt í þetta þá er ég viss um að við vinnum," segir Einar Freyr.

Með sigri á sunnudag jafnar Þór FH-inga að stigum í 9. sætinu.

Góðar minningar af leikjum gegn FH
Hvaða minningar áttu af leikjum gegn FH?

„Í meistaraflokki er það bara vítið mitt á móti þeim siðast, helvíti gott að sjá hann fara inn eftir að hafa klikkað þar á undan þegar ég fór á punktinn. Í yngri flokkum er það úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki sem við pökkuðum saman 5-1."

Fóru vel yfir hlutina fyrir leikinn gegn ÍBV
Þór vann seiglusigur gegn ÍBV í Eyjum í síðustu umferð. Fyrir þann leik höfðu Þórsarar tapað þremur leikjum í röð. Hvað gerði sigurinn gegn ÍBV fyrir hópinn?

„Það gerði helling fyrir okkur, við tókum langan og góðan fund í vikunni fyrir leikinn og fórum vel yfir hlutina þar. Það voru líka allir með rétta hugarfarið því þetta var alvöru iðnaðarsigur, þetta var fyrsti af sjö sigrum."

Stígandi hjá liðinu
Hvernig metur þú tímabilið til þessa, bæði hjá þér og liðinu?

„Hjá mér persónulega hefur gengið bara ágætlega, ég hef átt mjög góða leiki inn á milli en nokkra leiki líka sem mér finnst eins og ég hefði getað gert meira í."

„Hjá liðinu hefur þetta alls ekki verið nógu gott, það voru allt of margir leikir fyrr í sumar sem við erum ekki með fókus levelið nógu hátt til þess að spila í þessari deild en það hefur verið stígandi í þessu hjá okkur."


Vill skjóta meira á markið
Hver er þinn helsti styrkleiki og er eitthvað sem þú værir til í að gera meira af í þínum leik?

„Minn helsti styrkleiki er örugglega tækni, halda í boltann og snúa menn af mér. Ég mætti klárlega skjóta meira því ég veit að ég er mjög góður að skjóta og ef ég skýt meira þá hljóta mörkin að fara koma."

Einar hefur skorað tvö mörk í sumar og lagt upp þrjú á sínu fyrsta tímabili í efstu deild. Hann lék með U19 landsliðinu í sumar og bar fyrirliðabandið í báðum leikjum liðsins.

Brotnaði gegn ÍA
Þú meiddist gegn ÍA, hvernig er höndin?

„Ég fékk snúningsbrot í handarbakið en höndin er orðin miklu betri núna, er með spelku núna og þarf að vera með í 3-4 vikur í viðbót. Það er mjög þreytt að þurfa vera með annars hefur þetta eiginlega engin áhrif á mig lengur."

Langar að elta drauminn
Þú hefur farið á reynslu erlendis og félög sýnt þér áhuga, hvernig horfir framhaldið við þér? Leitar hugurinn út í vetur og var einhver spurning um að þú færir út jafnvel strax í sumar?

„Hugurinn leitar auðvitað alltaf út eftir tímabilið, manni langar að fara elta drauminn. Nei, það var aldrei nein spurning að ég myndi fara frá Þór núna í sumar," segir Einar Freyr.

„Sá alltaf fyrir mér að vera allan minn feril í Víkingi"
TENGT EFNI

„Sá alltaf fyrir mér að vera allan minn feril í Víkingi"

Ég hef átt mjög góða leiki inn á milli en nokkra leiki líka sem mér finnst eins og ég hefði getað gert meira í.

Ég hef átt mjög góða leiki inn á milli en nokkra leiki líka sem mér finnst eins og ég hefði getað gert meira í.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Við tókum langan og góðan fund í vikunni fyrir leikinn og fórum vel yfir hlutina þar

Við tókum langan og góðan fund í vikunni fyrir leikinn og fórum vel yfir hlutina þar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hugurinn leitar auðvitað alltaf út eftir tímabilið, manni langar að fara elta drauminn

Hugurinn leitar auðvitað alltaf út eftir tímabilið, manni langar að fara elta drauminn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.