04.09.26 - 21:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Isak: Síðasta tímabil var ekki auðvelt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alexander Isak var hetja Liverpool í 2-0 sigri á Ipswich í kvöld en hann skoraði bæði mörk liðsins. Þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu.
„Við vorum að biða eftir fyrsta sigrinum og vorum að tala um að byrja leikinn vel sem við höfum ekki gert hingað til. Við gerðum það með tveimur mörkum," sagði Isak.
Isak gekk til liðs við Liverpool frá Newcastle fyrir 125 milljónir punda og er dýrasti leikmaður í sögu deildarinnar. Hann var hins vegar mikið meiddur og skoraði aðeins þrjú mörk í 14 deildarleikjum, hann hefur nú jafnað þann árangur.
„Það var ekki auðvelt. Ég var meiddur lengi, erfitt tímabil á heildina litið. Ég var að hugsa: Ég vil eiga gott heimsmeistaramót og svo byrja tímabilið vel sem mér finnst ég hafa gert. Síðasta tímabil er að baki en það var ekki auðvelt," sagði Isak.