Fotbolti.net
04.09.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Stjóri Hull framlengir eftir frábæra byrjun

Stjóri Hull framlengir eftir frábæra byrjun
Canon

Mynd: EPA

Sergej Jakirovic, stjóri Hull City, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið eftir frábæra byrjun í úrvalsdeildinni. Félagið hefur tök á að framlengja samninginn um ár til viðbótar

Jakirovic tók við liðinu fyrir síðasta tímabil en Hull var talið líklegt til að falla úr Championship deildinni. Hann stýrði liðinu hins vegar í umspilið og liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni að lokum.
Hull byrjaði tímabilið í ár frábærlega með sigri á Man Utd og fylgdi því eftir með sigri á Coventry í nýliðaslag.

„Að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni er draumur sem varð að veruleika. Maður verður að hafa trú á starfinu sínu og við erum með sérstakan hóp sem er saman eins og fjölskylda. Við höfum sýnt í okkar fyrstu leikjum að við getum keppt á þessu stigi og verið hættulegir," sagði Jakirovic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.