Fotbolti.net
04.09.26 - 15:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Sá alltaf fyrir mér að vera allan minn feril í Víkingi"

 Það hefur verið vel tekið á móti mér og mér líður mjög vel í Krikanum

Það hefur verið vel tekið á móti mér og mér líður mjög vel í Krikanum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Erlingur Agnarsson var fyrir um mánuði síðan lánaður til FH frá uppeldisfélaginu Víkingi. Erlingur hafði fram að því spilað allan sinn feril með Víkingi en var í leit að fleiri mínútum á vellinum og þær fær hann hjá FH.

Fótbolti.net ræddi við Erling um fyrsta mánuðinn í Kaplakrika og komandi leik gegn Þór í Bestu deildinni.
Erlingur í FH (Staðfest)
TENGT EFNI

Erlingur í FH (Staðfest)

,Fyrsti mánuðurinn hjá FH hefur bara verið mjög góður. Það hefur verið vel tekið á móti mér og mér líður mjög vel í Krikanum. Það er vissulega smá skrítið að vera mættur í annað lið en Víking en það var fljótt að venjast," segir Erlingur.

Óskaði eftir því að fá að fara
Hvernig var aðdragandinn að því að þú fórst til FH?

„Þegar eitthvað var liðið á sumarið þá hafði ég verið í litlu sem engu hlutverki og sá lítið annað í stöðunni en að færa mig í annað lið og óskaði eftir því að fá að fara. Það tók smá tíma að fá niðurstöðu í þetta en lendingin var lán til FH sem ég er mjög ánægður með."

„FH er bara mjög flott félag með frábæra aðstöðu, mikil gæði í liðinu og gott þjálfarateymi. Það var bara einhver tilfinning um leið og þetta kom á borðið að þetta væri rétt skref fyrir mig."


Hentar jafnvel betur
Erlingur hefur verið að spila sem fremsti maður hjá FH. Ertu ánægður með hlutverkið?

„Já, ég er bara mjög ánægður með hlutverkið sem ég er í hjá FH. Er að spila aðeins aðra stöðu en ég hef gert undanfarin ár sem mér finnst bara gaman og jafnvel staða sem hentar mér betur. Svo er FH með mjög ungan leikmannahóp og ég er með eldri leikmönnum í liðinu og þá þarf maður að reyna að miðla reynslu inn í hópinn."

Átti erfitt með að taka skrefið í burtu
Varstu svekktur með hlutverkið hjá Víkingi?

„Hjá Víkingi var ég í afar litlu hlutverki inn á vellinum og eins og flestir fótboltamenn þá er maður í þessu til þess að spila leiki. Ég var alveg búinn að hugsa þetta í góðan tíma en átti alltaf erfitt með að taka skrefið að prófa eitthvað nýtt, sá alltaf fyrir mér að vera allan minn feril í Víkingi. Ég fékk alveg útskýringar frá Sölva og ég bara virði þær."

Komið á óvart hversu fagleg umgjörðin hjá FH er
Er hægt að bera saman að vera leikmaður FH og leikmaður Víkings?

„Í grunninn er svo sem ekki mikill munur á að vera leikmaður FH og leikmaður Víkings. Það er kannski helst staðan á klúbbunum, Víkingur er í toppbaráttu og í Evrópukeppni á meðan FH er að berjast í neðri hlutanum eins og er. Í grunninn er það samt bara það sama - æfa vel og fara inn í leiki til þess að vinna."

„Aðstaðan hjá FH mjög góð - í þennan stutta tíma sem ég hef verið hérna er grasið í toppstandi og það er alltaf skemmtilegt að spila á góðu grasi. Þannig að aðstöðulega séð er ekki mikill munur, nema á undirlagi."

„Ég held að öll þjálfarateymi séu svo sem ólík - hver með sínar áherslur og annað. Liðin æfa á sama tíma á daginn þannig að það er engin breyting á því fyrir mig."

„Það hefur kannski komið smá á óvart hvað FH er professional í umgjörð og svoleiðis. Annars myndi ég segja að það sé bara mjög svipuð aðstaða og umgjörð hjá báðum félögum."


Mikið undir hjá báðum liðum
Hvernig leggst leikurinn gegn Þór á sunnudaginn í þig?

„Hann leggst bara vel í mig. Þetta verður væntanlega hörku leikur þar sem mikið er undir hjá báðum liðum. Við þurfum bara að mæta með fulla einbeitingu og mikla ákefð í leikinn. Þurfum að vera meðvitaðir um hvað er undir en á sama tíma stilla spennustigið rétt og spila leikinn eins og við viljum spila."

Þú fórst norður með Víkingum í leikinn gegn Þór en komst ekki við sögu í þeim leik. Vissir þú þá að þú myndir færa þig um set í glugganum?

„Ég var þá bara búinn að ræða við Víkingana og svona taka stöðuna á því hver staðan mín væri innan félagsins og segja þeim hvað ég var að hugsa á þeim tíma. Ég var hins vegar ekki búinn að taka neina ákvörðun eða óska eftir því að fara á þeim tímapunkti."

Veit ekki hvað gerist eftir tímabilið
Erlingur er á láni hjá FH en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er kaupmöguleiki í lánssamningnum. Hvernig sérð þú framtíðina?

„Ég bara hreinlega veit ekki hvað gerist eftir tímabil ef ég á að segja alveg eins og er. Eins og staðan er núna þá er einbeitingin bara á því að spila vel með FH og reyna að hjálpa liðinu eins og ég get í þessari baráttu. Síðan kemur bara í ljós hvað gerist eftir tímabil," segir Erlingur.
 Ég var alveg búinn að hugsa þetta í góðan tíma en átti alltaf erfitt með að taka skrefið að prófa eitthvað nýtt

Ég var alveg búinn að hugsa þetta í góðan tíma en átti alltaf erfitt með að taka skrefið að prófa eitthvað nýtt

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég fékk alveg útskýringar frá Sölva og ég bara virði þær

Ég fékk alveg útskýringar frá Sölva og ég bara virði þær

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erlingur er 28 ára uppalinn Víkingur sem er á láni hjá FH.

Erlingur er 28 ára uppalinn Víkingur sem er á láni hjá FH.

Canon

Mynd: FH

FH hefur fengið sjö stig úr leikjunum þremur sem Erlingur hefur spilað.

FH hefur fengið sjö stig úr leikjunum þremur sem Erlingur hefur spilað.

Canon

Mynd: BerndsenPhoto

Sigrinum gegn Keflavík í síðustu umferð fagnað.

Sigrinum gegn Keflavík í síðustu umferð fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Úr leiknum gegn Keflavík.

Úr leiknum gegn Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.