Fotbolti.net
04.09.26 - 22:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Mikael spilaði í tapi gegn lærisveinum Fabregas

Ítalía: Mikael spilaði í tapi gegn lærisveinum Fabregas
Canon

Mynd: EPA

Genoa 1 - 4 Como
1-0 Milutin Osmajic ('19 )
1-1 Martin Baturina ('25 )
1-2 Assane Diao ('30 )
1-3 Nico Paz ('40 )
1-4 Assane Diao ('78 )
Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn þegar Genoa tapaði gegn Como í ítölsku deildinni í kvöld.

Milutin Osmajic kom Genoa yfir í sínum fyrsta byrjunarliðsleik en hann gekk til liðs við félagið frá Preston í sumar. Martin Baturina jafnaði metin með góðu skoti fyrir utan teiginn.

Assane Diao kom Como síðan yfir með skoti úr teignum eftir að Genoa tókst ekki að koma boltanum frá. Nico Paz bætti síðan þriðja markinu við þegar hann fékk sendingu inn fyrir vörn Genoa.

Það var síðan Diao sem innsiglaði sigur Como með öðru marki sínu og fjórða marki Como. Como er á toppnum með sjö stig eftir þrjár umferðir en Genoa er á botninum án stiga.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.