Stefán Marteinn (vinstri) og Haraldur Örn (hægri) þáttastjórnendur Tiltalsins og Danijel Dejan Djuric í miðjunni
Danijel Dejan Djuric var kynntur hjá KA í morgun. Danijel mætti í viðtalsþáttinn Tiltalið fyrir um þremur árum þar sem hann talaði um sína skoðun á liðunum fyrir norðan.
Danijel var spurður út í hvaða lið hann myndi aldrei vilja spila fyrir og talaði þar um Gróttu. Hins vegar þegar talið barst að liðunum á Akureyri sagði Danijel:
„Ég er mikill Þórsari, það er stórveldið á Akureyri. Ég dýrka Þór eftir að ég spilaði við þá í bikarnum. Þá voru mættir um 500 stuðningsmenn að syngja. Þeir tóku alveg góðan söng á mig með uppnefningum og þannig. Það er alvöru ástríða hjá Þórsurum sem ég vissi ekki að væri, þannig ég fíla mjög mikið Þór.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Danijel í tengdri frétt hér að ofan, en Danijel talar um Þór á 24. mínútu.
Athugasemdir


