Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   þri 13. apríl 2021 15:30
Magnús Már Einarsson
Brittney Lawrence í FH (Staðfest)
Mynd: FH
Brittney Lawrence hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild FH og mun því leika með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar

Brittney er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum.

Undanfarin ár hefur hún spilað við góðan orðstír í Kanada og hún á að baki fjölda landsleikja með St. Kitts og Nevis eins og varnarmaðurinn Tarvia Natalia Phillip sem einnig mun spila með FH í sumar í Lengjudeildinni.

„Það verður spennandi að sjá Brittney spreyta sig í FH búningnum í sumar og við bjóðum hana velkomna til félagsins," segir á Facebook síðu FH.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner