Siggi Raggi: Þetta er auðvitað áhyggjuefni
Auglýsing

Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, er spenntur fyrir sumrinu en segir að byrjun tímabilsins verði strembin.
Keflvíkingum er spáð 11. sæti deldarinnar af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar en liðið er að ganga í gegnum erfiða tíma.
Margir leikmenn eru frá vegna meiðsla og vantar einhverja tólf leikmenn. Liðið á erfiða dagskrá í byrjun móts og vonast Sigurður eftir því að fá einhverja leikmenn inn fyrir fyrsta leik.
„Hún hefur oft verið betri. Það er ofboðslega mikið af meiðslum, það eru einhverjir tólf leikmenn frá útaf meiðslum, þannig við erum að horfa í kringum okkur og sjá hvort við getum styrkt hópinn og liðið fyrir mótið en þegar allir eru heilir erum við með fínt lið og vonandi náum við því fljótlega."
„Auðvitað er það áhyggjuefni. Fyrstu fjóra leikina eigum við Breiðablik, Val, Víking og KA úti. Þetta er ekkert auðveldara prógram en í fyrra sem var erfitt í byrjun. Við höfum áhyggjur af því en vonandi náum við inn einhverjum styrkingum á síðustu stundu fyrir mót og tjöslum okkur saman fyrir þessa leiki og svo koma náttúrlega menn inn og þá verður þetta betra."
„Mér líst vel á sumarið. Ég veit að ef við sleppum við meiðslavandræði þá erum við með gott lið og sterkara lið en í fyrra en þegar það eru svona margir meiddir þá myndi það bíta öll liðin í deildinni að vera með svona marga frá og þetta eru allt sitt hvor meiðslin og erfitt að sjá trend í því, hvort við séum að gera eitthvað rangt í þjálfuninni eða hvað það er."
„Þetta verður strembið í byrjun en svo söfnum við mönnum inn sem hjálpa okkur og þá verður þetta betra," sagði hann ennfremur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.