Þórður Jensson: Hef trú á þessum stelpum
Auglýsing

Þórður Jensson (t.h.) var ánægður með sigurinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Jensson, þjálfari FH, var að vonum ánægður með 3-1 sigur sinna stúlkna gegn Aftureldingu í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna.
,,Ég er mjög ánægður. Það er gott að koma hingað upp í Mosó og taka þrjú stig gegn sterku liði Aftureldingar. Við spiluðum við þær fyrir viku en þetta var gjörbreytt lið hjá þeim,\" sagði Þórður.
,,Við erum búin að vera að leita ýmissa leiða (til að styrkja liðið) og það gekk ekki alveg, en ég er samt mjög ánægður með hópinn sem við erum með. Ég hef trú á þessum stelpum og þær kunna að spila fótbolta, þannig að aldurinn skiptir svosum ekki máli.\"
,,Það var mikilvægt að byrja mótið á sigri og byrja þessa stigasöfnun. Sjálfsagt verðum við örugglega að keppa svolítið við Aftureldingu og það er ágætt að ýta þeim aðeins fyrir aftan okkur.\"