Fotbolti.net
13.05.17 - 19:38
Mist Rúnarsdóttir

Jóhannes Karl: Okkar að spila okkur eftir spánni

Auglýsing
Jóhannes Karl stýrð liði sínu til sigurs í fyrsta leik

Jóhannes Karl stýrð liði sínu til sigurs í fyrsta leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
„Þetta var frábær byrjun. Þetta var virkilega gott. Það er alltaf erfitt að koma á ÍR-völlinn og alltaf stress í fyrsta leik þannig að það var gott að klára þetta í dag“ sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari HK/Víking við Fótbolta.net eftir 5-0 sigur á ÍR í fyrstu umferð 1.deildar kvenna.
„Við í rauninni lögðum upp með það sama og við höfum verið að gera á undirbúningstímabilinu. Reyna að vera liðið sem stýrir leiknum og halda bolta svolítið. Það byrjaði virkilega illa. Það var greinilega stress í leikmönnum og bæði lið svosem ekki að halda bolta neitt sérstaklega en það datt svo með okkur fyrsta markið. Milo skorar gegn gangi leiksins í rauninni, 1-0 og léttir aðeins pressuna. Þetta fór svona að detta aðeins meira okkar megin eftir það.“

HK/Víkingar höfðu tögl og hagldir á leiknum en í stöðunni 2-0 fengu ÍR-ingar nokkur tækifæri til að minnka muninn og hleypa spennu í leikinn.

„ÍR-ingarnir eru skeinuhættir. Þær eru mjög fljótar að refsa og voru með tvo leikmenn uppi sem gera mikinn usla. Það er í þrígang sem Björk þarf að verja ein á móti manni. Við erum að opna okkur fullmikið og erum að klikka á pressunni á miðsvæðinu í þeim atriðum. En við erum með frábæran markmann og hún í rauninni bjargar okkur í dag.“

Jóhannes Karl notaði allar fimm skiptingar sínar í leiknum og það virðist góð breidd í leikmannahópnum.

„Við erum með sterka leikmenn. Þetta er góð blanda af yngri og eldri leikmönnum og það er mjög sterkt fyrir okkur eins og í dag að eiga Eddu á bekknum upp á topp. Hún er allt öðruvísi leikmaður en framherjinn sem við byrjuðum með og gaf okkur ákveðnar breytingar og ákveðna vídd sem að voru virkilega sterkar í sóknarleiknum í dag.“

Það má búast við mikilli spennu í 1.deildinni í sumar en þó að einhver lið séu sigurstranglegri en önnur er margt óljóst ennþá og liðin ekki öll fullmótuð.

„Þetta er mikil óvissa þannig. Við vitum lítið um hin liðin og menn eru enn að fá inn leikmenn. Eins og ég sé þetta fyrir okkur þá erum við búin að vera með fullmótað lið meira og minna í vetur og eigum að hafa það sem forskot að geta byrjað mótið af fullum krafti en þetta verður áhugavert. Við eigum leik strax á miðvikudag á móti Þrótti og það verður bara hörkuleikur.“

Fótbolti.net fékk þjálfara og fyrirliða liðanna í deildinni til að spá fyrir um mótið og HK/Víkingum var þar spáð 2. sæti. Jóhannes Karl er ánægður með þá spá enda sé markmiðið að fara með liðið upp um deild.

„Mér finnst það bara frábært. Það er fínt að fara inn í mótið með það. Þetta er okkar markmið og við viljum fara í Pepsi-deildina. Við erum bara því miður ekki eina liðið sem vill það,“ sagði Jóhannes og glotti en bætti við: „Spá og ekki spá. Ég held að menn hafi spáð svolítið blint því að voru ekki allir leikmenn komnir og mikil óvissa í gangi en þetta er bara sá staður sem við viljum vera á og nú er það bara okkar að spila okkur eftir spánni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.