Fotbolti.net
13.05.26 - 12:00
Kári Snorrason

Almarr Ormarson spáir í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins

Almarr Ormarsson spáir í spilin.

Almarr Ormarsson spáir í spilin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fer fram í dag og á morgun. Hitað var upp fyrir umferðina í sérstökum upphitunarþætti hér á Fótbolta.net, sem hægt er að nálgast í spilaranum hér að neðan.

Almarr Ormarsson var gestur þáttarins og spáði í leikina átta.
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns?
TENGT EFNI

Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns?

Þróttur R. 1-2 Breiðablik (17:30 í dag)
Þetta verður skemmtilegur leikur en ekkert allt of mikið af mörkum.

HK 0-4 Víkingur R. (19:15 í dag)
Til að gefa HK-ingum smá auka spark í rassinn, svo þeir geti unnið Íslandsmeistarana og verið brjálaðir út í mig, þá spái ég Víkingi 4-0 sigri.

Afturelding 1-1 Njarðvík (19:15 í kvöld)
Þetta er kannski leikurinn sem er erfiðast að spá í. Davíð Smári er góður að setja upp einstaka leiki. Ég sé fyrir mér jafntefli og að þetta fari alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Njarðvík hefur betur.

ÍA 2-3 Grindavík (19:15 í kvöld)
Það er leiðinlegt að spá öllum Bestu deildar liðunum sigri þannig ég ætla að vera bjartsýnn fyrir hönd Grindavíkur. Þeir skora dramatískt sigurmark í uppbótartíma.

Stjarnan 3-4 KR (20:00 í kvöld)
Miðað við sjálfstraustið á KR mönnum og gengi Stjörnumanna þá býst ég við KR sigri. Þetta eru yfirleitt markaleikir og það er ekkert að fara breytast.

KA 3-1 Ægir (14:00 á morgun)
Auðvitað spái ég KA sigri, ekki bara því ég er KA-maður. Þeir eiga að vinna þennan leik. Eigum við ekki að setja tvö mörk á Djuric, hann dettur í gang.

Vestri 2-1 Grótta (14:00 á morgun)
Ríkjandi bikarmeistarar á heimavelli eru líklegri þarna. Ég held að við fáum þá aðeins lengra í þessa keppni.

Fylkir 3-1 FH (15:00 á morgun)
Þetta er mögulega áhugaverðasti leikur 16-liða úrslita, nóg af sögulínum. Heimir Guðjóns fór sáttur á koddann þegar hann sá þennan drátt. Ég held að Fylkismenn taki þetta, þeir skora tvö í framlengingu og vinna 3-1 sigur.
Stjarnan og KR eigast við í eina Bestu deildar slag 16-liða úrslita.

Stjarnan og KR eigast við í eina Bestu deildar slag 16-liða úrslita.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Heimir Guðjóns mætir sínu gömlu félögum.

Heimir Guðjóns mætir sínu gömlu félögum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland í dag - Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins hefjast

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.