Fotbolti.net
13.05.26 - 11:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 4. umferðar - Tvær úr Val

Ísabella Sara var geggjuð gegn Breiðabliki.

Ísabella Sara var geggjuð gegn Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík eiga flesta fulltrúa í sterkasta liði 4. umferðar Bestu deildar kvenna eftir stórkostlegan útisigur gegn Þrótti í Laugardalnum.

Natasha Anasi er í liðinu í þriðja sinn í sumar en Rakel Sigurðardóttir og Tinna Hrönn Einarsdóttir voru jafnframt frábærar í leiknum. Þá er Gylfi Tryggvason þjálfari umferðarinnar.
Sterkasta lið 3. umferðar - Tvö úr horni og alltaf í liðinu
TENGT EFNI

Sterkasta lið 3. umferðar - Tvö úr horni og alltaf í liðinu



Valur tapaði á grátlegan hátt gegn Breiðabliki, 3-2, eftir að hafa verið 1-2 yfir lengst af þrátt fyrir að vera einum færri nánast allan leikinn. Margrét Brynja Kristinsdóttir var maður leiksins og var Ísabella Sara Tryggvadóttir einnig frábær í liði Vals. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti góðan leik í liði Breiðabliks og er í sterkasta liðinu í þriðja sinn í sumar.

Olga Sevcova heldur áfram að vera mögnuð fyrir nýliða ÍBV sem eru með fullt hús stiga. Allesandra Augur í marki Þórs/KA kom í veg fyrir það að 2-0 sigur ÍBV yrði stærri.

Jasmín Erla Ingadóttir var hetja Víkings gegn Fram og þá voru Deja Sandoval og Ída Marín Hermannsdóttir bestar í sigri FH gegn Stjörnunni í Garðabæ.
Gylfi er þjálfari umferðarinnar.

Gylfi er þjálfari umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jasmín var hetja Víkinga.

Jasmín var hetja Víkinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Grátlegt fyrir Val og slakir sóknarmenn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.