Rakel Sigurðardóttir (Grindavík/Njarðvík)
Rakel Sigurðardóttir, bakvörður úr Grindavík/Njarðvík, er sterkasti leikmaður 4. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.
Hún átti frábæran leik þegar nýliðarnir gerðu stórkostlega ferð í Laugardaginn og unnu þar óvæntan 1-2 sigur gegn Þrótti.
Hún átti frábæran leik þegar nýliðarnir gerðu stórkostlega ferð í Laugardaginn og unnu þar óvæntan 1-2 sigur gegn Þrótti.
„Mjög góð frammistaða hjá Rakel í kvöld, var mjög spræk í wingback, stoðsending í fyrsta markinu og setti svo sjálf seinna markið og hennar fyrsta mark í Bestu deildinni!" skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í skýrslu sinni frá leiknum.
Rakel er efnilegur leikmaður, fædd árið 2007, sem kom til nýliðanna frá Víkingi á láni rétt fyrir fyrsta leik. Hún kemur til með að fá dýrmæta reynslu í Bestu deildinni í sumar.
Rakel er uppalin hjá Breiðablik en hefur leikið með Víking Reykjavík frá árinu 2024. Á síðustu leiktíð kom Rakel við sögu í sex leikjum í Bestu deildinni með Víkingi en hún hefur þegar komið við sögu í fjórum leikjum í deildinni í sumar og er búin að skora eitt mark.
Rætt var um Rakel og fleiri leikmenn úr Grindavík/Njarðvík í nýjasta þætti af Uppbótartímanum. „Hún átti stoðsendinguna í fyrra markinu og setti seinna markið sjálf. Hún var mjög flott upp og niður í vængbakverðinum," sagði Snæbjört í þættinum en Rakel er klárlega leikmaður til að fylgjast með í Grindavík/Njarðvík í sumar.
Hægt er að hlusta á allan þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.


