Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkust í 1. umferð - Svaraði gagnrýnisröddunum
Jasmín fer vel af stað í Víkingi.
Jasmín fer vel af stað í Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leikinn gegn Stjörnuni.
Fyrir leikinn gegn Stjörnuni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jasmín Erla Ingadóttir er sterkasti leikmaður 1. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar. Hún átti stórleik þegar Víkingur lagði Stjörnuna að velli í hörkuleik í Fossvoginum.

„Átti mjög flottan leik í dag, var allt í öllu og hóf tímabilið á marki og stoðsendingu hjá nýja félaginu," skrifaði Brynjar Óli Ágústsson í skýrslu sinni frá leiknum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 Stjarnan

Í upphitunarþætti Fótbolta.net fyrir tímabilið var tekinn saman listi yfir fimm leikmenn sem eiga meira inni miðað við síðasta tímabil. Var Jasmín þar í raun efst á lista.

„Eigum við að tala um hugarfar? Ef Jasmín Erla nennir, þá er hún besti leikmaðurinn í deildinni," sagði Magnús Haukur Harðarson í þættinum.

„Hún er með þá eiginleika. Hún er með góðan skotfót, leikskilning og yfirsýn. Ég vona svo innilega að við fáum að sjá Stjörnu Jasmín Erlu. Hún er með alla þessa hæfileika. Ég bind miklar vonir við að hún rífi sig upp og að hamingjan verði mjög hamingjusöm."

Jasmín er að koma í Víking eftir frekar erfiðan tíma þar sem hún fann sig ekki alveg. Þar áður var hún einn besti leikmaður deildarinnar í Stjörnunni, sem hún lék grátt í 1. umferð.

Jasmín byrjar af krafti í Víkinga og vonandi fyrir Víkingsliðið mun hún eiga frábært sumar í nýju liði.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá mörkin úr leiknum.



Slapp
banner
banner
banner