13.06.05 - 07:23
Hafliði Breiðfjörð
Stefán Örn Arnarson í Keflavík (Staðfest)

Marki Stefáns Arnar fagnað í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marki Stefáns Arnar fagnað í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Örn Arnarson fékk í gær leikheimild með Keflavík og fór beint í leikmannahóp liðsins sem mætti Val á heimavelli sínum og Stefán stimplaði sig rækilega inn í Landsbankadeildina þetta árið með marki aðeins níu mínútum eftir að honum hafði verið skipt inná.
Stefán Örn var nýlega látinn fara frá Víkingum en fram að því hafði hann skorað eitt mark í einum leik í 1. deildinni. Hann er 24 ára gamall framherji og kom til Víkinga frá Fram í upphafi ársins 2000.
Stefán fer til Keflavíkur í láni frá Víkingum.
Stefán fer til Keflavíkur í láni frá Víkingum.
