13.06.05 - 11:27
Hafliði Breiðfjörð
Andy O´Brien til Portsmouth (Staðfest)

Portsmouth hafa keypt varnarmanninn Andy O´Brien frá Newcastle United á tvær milljónir punda en leikmaðurinn gerir fjögurra ára samning við Portsmouth.
O´Brien er 25 ára gamall írskur landsliðsmaður. Hann hefur verið í fjögur ár hjá Newcastle en þangað kom hann frá Bradford á eina milljón punda árið 2001. Hann lék 172 leiki fyrir Newcastle.
,,Við höfum samið við fyrsta flokks leikmann sem hefur spilað á toppnum fyrir bæði land sitt og félagslið og hefur mjög góða tölfræði." sagði Peter Storrie framkvæmdastjóri Portmsouth.
O´Brien hafði í janúar gert eins árs framlengingu á samningi sínum við Newcastle en er nú óvænt farinn frá félaginu. Hann er annar varnarmaðurinn sem fer frá Newcastle en Aaron Hughes fór til Aston Villa á eina milljón punda.