13.06.05 - 14:25
Hafliði Breiðfjörð
Smicer til Bordeaux (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórður Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Þórður Einarsson
Vladimir Smicer hefur skrifað undir tveggja ára samning við franskal iðið Bordeaux en það gerði hann eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í morgun.
,,Vladimir fór í læknisskoðun hjá Bordeaux í dag og er í 100% formi til að spila," sagði Dalibor Lacina talsmaður umboðsfyrirtækis Smicer.
Tékkinn er 32 ára gamall. Hann skoraði mikilvægt mark í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu fyrir Liverpool og vann með liðinu Evrópumeistaratitilinn í ár. Hann lék áður í Frakklandi með Lens þar sem hann varð franskur meistari 1998.
Hann gekk í raðir Liverpool undir stjórn Gerard Houllier í júlí 1999 en kaupverðið var 4,2 milljónir punda.