Fotbolti.net
13.06.05 - 17:04
Hafliði Breiðfjörð

Stead til Sunderland (Staðfest)

Stead til Sunderland (Staðfest)
Canon
Jon Stead framherji enska U-21 árs landsliðsins gekk í dag í raðir nýliða Sunderland í ensku úrvalsdeildinni frá Blackburn en kaupverðið var 1,8 milljón punda. Stead er 22 ára gamall en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Sunderland eftir 16 mánuði á Ewood Park.
,,Ég er loksins að fara í rauða og hvíta búninginn eftir að hafa verið í þeim bláa og hvíta, svo ég er hæstánægður og hlakka til," sagði Stead við vefsíðu Sunderland.

,,Ég valdi á milli Sunderland og Charlton og talaði við báða aðila og leit í kringum mig. Þetta var bara tilfinningin sem ég fékk þegar ég kom hingað."

Stead skoraði 24 mörk í 76 leikjum fyrir Blackburn en hann hóf ferilinn hjá Huddersfield.

,,Þetta er stórt félag, úrvalsdeildarfélag, og ég hef fulla trú á að við verðum úrvalsdeildarfélag í margar leiktíðir. Ég hefði ekki komið hingað ef ég teldi ekki að það væri 100% að ég gæti það."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.