Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
banner
   mán 13. júní 2022 21:33
Elvar Geir Magnússon
Davíð Kristján: Sáttur en veit að ég á mikið inni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vinstri bakvörðurinn Davíð Kristján Ólafsson ræddi við Fótbolta.net eftir 2-2 jafnteflið gegn Ísrael í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Ísrael

„Það var svekkjandi að komast yfir tvisvar en þeir jafna í báðum tilfellum. Það er drullusvekkjandi," segir Davíð.

Hann segir jákvætt fyrir sig persónulega að hafa fengið tvo byrjunarliðsleiki.

„Það er jákvætt. Ég á mikið inni en ég horfi á þetta þannig að þetta eru nýir liðsfélagar. Tengingarnar inni á vellinum verða betri með því að fá leiki. Ég er alveg sáttur en veit að ég á mikið inni."

Kom honum á óvart að fá þessa byrjunarliðsleiki?

„Ég var tilbúinn, er í formi og hef spilað vel með félagsliðinu mínu. Ef ég fengi tækifæri ætlaði ég að gera eins vel og ég gæti. Mér fannst það takast ágætlega."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar fer hann nánar í sína frammistöðu og upplifunina í glugganum.
Slapp
banner