Fotbolti.net
13.06.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild kvenna: Dramatísk jöfnunarmörk í uppbótartíma

2. deild kvenna: Dramatísk jöfnunarmörk í uppbótartíma
Canon

Mynd: Aðsend

Hertz
Það fóru tveir leikir fram í 2. deild kvenna í dag þegar KFR og Dalvík/Reynir gerðu jafntefli á heimavelli.
KFR gerði jafntefli við Augnablik á sama tíma og Dalvík spilaði við Vestra.

KFR var með forystuna nánast allan leikinn en gestirnir úr Kópavogi náðu að pota inn jöfnunarmarki í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 1-1.

Þetta er aðeins fyrsta stigið sem KFR krækir sér í eftir fimm umferðir á meðan Augnablik er með 10 stig eftir 6 umferðir.

Vestri komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik í Dalvík en tíu heimakonur svöruðu fyrir sig á lokamínútunum.

Dalvíkingar misstu leikmann af velli á 67. mínútu en fengu ekki fleiri mörk á sig. Þess í stað skoruðu Arney Elva Valgeirsdóttir og Iðunn Rán Gunnarsdóttir á lokamínútunum til að bjarga stigi á ævintýralegan hátt.

Dalvík/Reynir er með fimm stig eftir fimm umferðir en þetta er skellur fyrir Vestra sem er með 12 stig eftir 6 umferðir. Ísfirðingar gátu komið sér einu stigi frá toppliði Aftureldingar með sigri.

KFR 1 - 1 Augnablik
1-0 Ólöf Inga Pálsdóttir ('13 , sjálfsmark)
1-1 Elsa Hlín Sigurðardóttir ('93 )

Dalvík/Reynir 2 - 2 Vestri
0-1 Raniyah Ajanai Marie Burton ('36 )
0-2 Jayla Finley Ponce ('45+3)
1-2 Arney Elva Valgeirsdóttir ('88 )
2-2 Iðunn Rán Gunnarsdóttir ('95, víti)
Rautt spjald: María Sól Helgadóttir, D/R ('67)
2. deild kvenna: Dramatísk jöfnunarmörk í uppbótartíma
Canon

Mynd: Davíð Þór Friðjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.